10.10.2010 | 11:31
Friðunarstefna
"algjört grundvallaratriði að Vinstrihreyfingin grænt framboð stjórni og nái að koma þessum málaflokki í skjól undan ráðandi öflum nýtingar og gróðasjónarmiða"
Þýðir þetta algjöra friðunarstefnu og að engin orka verði nýtt til hagsbóta fyrir þjóðina?
Við skulum taka eftir því að í tilkynningu VG eru orðin nýting og gróðasjónarmið lögð að jöfnu og það er það skelfilega við þetta allt saman.
"gróðasjónarmið" er í eyrum VG eitthvert almesta skammaryrði sem til er og nú er nýting orðið það líka.
Hvort sem VG líkar betur eða verr verður að hugsa allar framkvæmdir sem einhverskonar hagsbætur í huga. Við framkvæmum ekkert nema að einhver hafi af því hagsbætur því annars væri framkvæmdin algjörlega tilgangslaus. VG lítur svo á að þau séu einu handhafar réttlætisins þegar kemur að því að meta það hverjir skulu hafa hagsbætur af einhverju sem gera skal.
Ofstækið ríður ekki við einteyming
Málþing VG um umhverfismál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.