Eftirsjá í fjármununum

Mikil eftirsjá er í þeim fjármunum sem settir voru í þessa tvöföldun. Fyrir utan ruglinginn og slysahættu á gatnamótum þá greiðir þetta lítið fyrir umferð, því miður.
mbl.is Ruglingsleg vegamót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að lofa upp í ermina

Ekki hélt ég að Guðbjartur myndi falla þá gryfju að nota þessa útjöskuðu frasa. En þegar menn skortir rök og réttlætingu fyrir fyrir ákvörðunum þá er gripið til örþrifaráða. Það er ekki sök gagnrýnenda að hann lofaði upp í ermina á sér.
mbl.is „Og svo koma brennuvargarnir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundarstjórn Forseta Íslands

Þessi skoðanamunur er gott dæmi um það hvað það er fráleit að setja tillögur stjórnlagaráðs beint í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þótt sú atkvæðagreiðsla yrði alltaf bara ráðgefandi vegna ákvæða í gildandi stjórnarskrá, þá verður að fara fram umræða og nánari skoðun á einstökum greinum.

Í tillögu stjórnlagaráðs segir; "Eftir að hafa ráðfært sig við þingflokka og þingmenn gerir forseti Íslands tillögu til þingsins um forsætisráðherra." Hvernig Eiríkur Bergmann túlkar þessi orð sem fundarstjórn gefur klárlega ástæðu til að endurskoða orðalagið.

Vilja menn virkilega að svona lagað fari óbreytt í þjóðaratkvæði?

Það er fleira í tillögunum sem verður að ræða nánar og mér finnst þeir meðlimir stjórnlagaráðs sem krefjast þess að tillögurnar fari beint í þjóðaratkvæði taka æði stórt uppí sig.


mbl.is Alþingi kýs forsætisráðherra án atbeina forseta Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfugsnúningur

Merkilegt er að allt það lýðræðiselskandi fólk sem hefur brennandi áhuga á að "bæta" stjórnarskrána skuli ætla að líða það að núverandi stjórnarskrá skuli hunsuð. Margir í skipuðu stjórnlagaráði hafa komið fram á ritvöllinn og mælt með eða jafnvel krafist þess að haldin verði bindandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur ráðsins. Las þetta fólk ekki stjórnarskrána sem það vill breyta?

Þetta er öfugsnúningur og bætir ekki virðingu fyrir stjórnarskránni.


mbl.is Mikill meirihluti vill þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vindhaninn

Geta menn eitthvað lesið í það hvað innanríkisráðherrann ætlar að gera? Það fer eftir því hvar hann er hvað hann segir.  Ótrúlegur vingulsháttur. Vindhani veit betur um framtíðarstefnu sína en Ögmundur.
mbl.is Útilokar ekki þverun Þorskafjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móðursýki

Móðursýkisleg viðbrögð eru við þessari hugmynd um allar jarðir. Hvað vilja menn? Ætla menn að takmarka sölu á eignum á Íslandi almennt? Hér á hinn almenni réttur að gilda. Jafnvel menn sem ólmir vilja selja okkur til ESB vilja alls ekki að neinn utan þess himnaríkis hafi aðgang.


mbl.is Óeðlilegt að geta keypt stórar jarðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skömmin

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og stuðningsmenn hennar hafa niðurlægt Alþingi með þessum gjörðum sínum. Verði skömm þessa fólks ævarandi.
mbl.is Fyrstu pólitísku réttarhöldin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurlægingin

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og stuðningsmenn hennar hafa niðurlægt Alþingi með þessum gjörðum sínum. Verði skömm þessa fólks ævarandi.
mbl.is Engin réttarfarsleg mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurlægingin

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og stuðningsmenn hennar hafa niðurlægt Alþingi með þessum gjörðum sínum. Verði skömm þessa fólks ævarandi.
mbl.is Mun skjóta máli til Mannréttindadómstóls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjasta nýtt

Ekkert kemur lengur á óvart þegar núverandi stjórnvöld eru annars vegar. Þetta bananalýðveldi sem Ísland er orðið að á sér engan líkan meðal siðmenntaðra þjóða. Seðlabankinn undir stjórn Más er orðinn að pólitískri áróðursskrifstofu fyrir stjórnvöld þar sem sannleikurinn þvælist ekki fyrir tilganginum. Hvar á vesturlöndum fengi Seðlabankastjóri að sitja áfram eftir svona vinnubrögð?

Jú, á Íslandi undir stjórn ríkistjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur en hvergi annarstaðar.


mbl.is Skuldir þjóðarbúsins mun hærri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband